Samskip - Fréttir
Samskip og Íslandsbanki semja um fjármögnun nýrra höfuðstöðva og vörumiðstöðvar Samskipa
Knútur G. Hauksson forstjóri Samskipa hf. og Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka hf. hafa skrifað undir samkomulag um fjármögnun á nýjum höfuðstöðvum og vörumiðstöð Samskipa sem rís við Kjalarvog í Reykjavík. Lánið er að upphæð 2,1 milljarður króna og er stærsta einstaka lán sem Samskip hafa staðið að.
"Það gleður okkur að eiga þessi viðskipti við Íslandsbanka og lánið tryggir að við getum staðið við þau markmið sem við höfum sett okkur um að flytja inn í nýjar höfuðstöðvar næsta haust," sagði Knútur G. Hauksson við undirskriftina í dag. "Það er ánægjulegt fyrir Íslandsbanka að koma að þessu mikilvæga verkefni með Samskipum og stuðla með því að auknu hagræði í vörustjórnun hjá félaginu," sagði Bjarni Ármannson við þetta tækifæri.
Hið nýja hús Samskipa verður hið stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Öll nýjasta tækni í vöruhúsaþjónustu verður nýtt þar til hins ýtrasta. Húsið, sem er stálgrindarhús, verður alls 25 þúsund fermetrar að stærð og 240 metra langt, sem er þreföld lengd núverandi húsnæðis Samskipa við Holtabakka. Byggingin verður í senn vörumerki og ímynd Samskipa á svæðinu í krafti forms, stærðar, efnis og litavals. Arkitektastofan Arkís hannaði húsið og Ístak annast byggingaframkvæmdir.
Verklok eru áætluð í endaðan september á næsta ári.

