Samskip annast mestu þungaflutninga Íslandssögunnar
-þegar fyrsta risaborvélin af þremur sem nota á við Kárahnjúkavirkjun kemur til landsins
Fyrsti risaborinn af þremur sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar er væntanlegur til landsins um miðjan desember með skipi á vegum Samskipa og samstarfsaðila frá Cleveland í Bandaríkjunum. Það er stórflutningadeild Samskipa (Sigla) sem hefur umsjón með flutningi borsins til landsins og sér einnig um að koma honum frá Reyðarfirði á virkjanasvæðið við Kárahnjúka.
Heildarþyngd borsins og fylgihluta er alls um 600 tonn og er þyngsti hluturinn, sjálf borkrónan, um 127 tonn! Til að auðvelda flutning borkrónunnar verður hún tekin í sundur og vegur þá þyngsti einstaki hluturinn í þessum flutningum aðeins um 75 tonn!
Til að leysa þetta verkefni á farsælan hátt hafa Samskip látið fara fram vettvangskönnun á leiðinni milli Reyðarfjarðar og Kárahnjúka og í framhaldinu unnið sérstaka úttekt hvernig taka skuli á málinu. Þar kemur m.a. fram að alls þurfi að fara 26 ferðir frá Reyðarfirði upp að Kárahnjúkum til að koma risabornum og fylgihlutum á áfangastað. Verður m.a. notast við sérstyrktan flutningavagn. Þá kann að vera að grípa þurfi til sérstakra aðgerða sums staðar á leiðinni, s.s. á Egilsstöðum til að flutningalestin komist leiðar sinnar. Ekki er hins vegar talið að vandkvæði verði á því að skipa bornum og fylgihlutum hans upp á Reyðarfirði því Samskip hafa nýlega staðsett einn stærsta bílkrana landsins þar. Getur hann lyft allt að 150 tonnum.
Stóraukin umsvif Siglu
Umsvif stórflutningadeildar Samskipa, Siglu, hafa aukist verulega eftir að virkjunarframkvæmdirnar hófust eystra. Hafa stórflutningaskip á vegum félagsins haft viðkomu á Reyðarfirði að jafnaði á 14 daga fresti undanfarna mánuði og þessa dagana losa þar og lesta tvö skip með aðeins nokkurra daga millibili. Þannig losar M/V Antje Jurgens gámavöru og vélar fyrir Impregilo á Reyðarfirði í dag, fimmtudaginn 31. október, og lestar þar 500 tonn af frosinni síld og 5 stórar vélar sem flytja á til Evrópu. Áður hafði skipið lestað 2000 tonn af járnblendi í Reykjavík Annað leiguskip er svo væntanlegt á vegum Siglu til Reyðarfjarðar nk. mánudag með vörubíla, vinnuvélar og færibönd, beint frá Ítalíu og Spáni.
Fram til þessa hafa flutningar Samskipa vegna virkjunarframkvæmdanna aðallega verið fyrir ítalska verktakafyrirtækið Impregilo en nýlega tóku Samskip einnig að sér flutninga fyrir Fosskraft sf., sem byggir stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar.

