Samskip - Fréttir
Undirskrift - verkfræðinemar

Samskip og Háskóli Íslands undirrita samstarfssamning

5.11.2003

Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, og Sigurður Brynjólfsson, deildarforseti Verkfræðideildar Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samstarfssamning um stuðning Samskipa við Verkfræðideild HÍ.  Samningurinn er til þriggja ára og er markmið hans að gefa nemendum Verkfræðideildar kost á að kynnast starfsemi og hugmyndafræði Samskipa, efla tengsl deildarinnar við atvinnulífið og nýta þekkingu og krafta hennar til framþróunar og nýsköpunar innan Samskipa.

Samningurinn tekur til fimm þátta og er styrkur til eins meistaranema við Verkfræðideildina stærsti liður hans.  Einnig verður efnt til samkeppni meðal meistaranema um lausn á raunhæfu verkefni hjá Samskipum og hljóta vinningshafar vettvangsferð erlendis í verðlaun.  Þá bjóða Samskip til sín einum nemenda til verkþjálfunar á sumrin og opna dyr sínar fyrir nemendum hvað varðar raunhæf verkefni vegna námskeiða við Verkfræðideildina ásamt því að gestafyrirlesarar frá Samskipum flytja erindi á námskeiðum deildarinnar.

Í tilefni undirritunar samningsins var nemendum og starfsfólki Verkfræðideildar HÍ boðið í heimsókn til Samskipa, þar sem starfsemi félagsins var kynnt og tækifæri gafst fyrir nemendur að kynnast starfsfólkinu og afla verkefna fyrir næstu námskeið.

Verkfræðideild Háskóla Íslands samanstendur af fjórum skorum, umhverfis- og byggingarverkfræðiskor, véla- og iðnaðarverkfræðiskor, rafmagns- og tölvunarverkfræðiskor og tölvunarfræðiskor.  Alls stunda um 900 nemendur nám við verkfræðideildina, þar af eru 100 í framhaldsnámi.Verkfræðinemar




Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica