Samskip hasla sér völl í flugfrakt á alþjóðamarkaði -opna skrifstofu á Schiphol flugvelli í Amsterdam
Samskip eru að hasla sér völl í flugfrakt á alþjóðamarkaði og hafa opnað skrifstofu á Schiphol flugvelli í Amsterdam sem er ætlað að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini félagsins.
Rekstur skrifstofunnar á Schiphol flugvelli, einum stærsta fraktflugvelli Evrópu og miðstöð tengiflugs um víða veröld, heyrir undir Samskip BV, dótturfyrirtæki Samskipa í Rotterdam. Hefur hollendingurinn Edwin Bastemejer, sem hefur starfað í mörg ár hjá ítölsku flutningamiðluninni Mezario, verið ráðinn til að stýra starfseminni.
"Opnun skrifstofunnar á Schiphol er bara fyrsta skrefið okkar inn á þennan markað," segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri Samskipa BV. "Nú getum við boðið viðskiptavinum okkar hér á meginlandi Evrópu heildarlausnir í flutningum á þeirra markaðssvæði auk þess sem starfsemin á Schiphol flugvelli fellur vel að allri annarri flutningaþjónustu Samskipa."
Heimilisfang skrifstofunnar á Schiphol flugvelli í Amsterdam er:
Samskip BV
Branch office-airfreight
Zandsteen 42
2132 MR Hoofddorp
Hollandi
Sími: 0031 20 6532055

