Samskip - Fréttir
Samskip kaupa hollenskt flutningafyrirtæki-styrkir stöðu félagsins á lykilmörkuðum í Norður-Evrópu og Rússlandi
Samskip hafa keypt hollenska flutningafyrirtækið Van Dieren Maritime BV sem byggt hefur upp og rekur sérhæft flutningakerfi í Norður-Evrópu, Eystrasaltslöndunum og Rússlandi. Kaupin eru enn einn áfanginn í útrás Samskipa í austurveg og munu styrkja stöðu félagsins enn frekar á þessum lykilmörkuðum.
Van Dieren Maritime var stofnað árið 1959 og er með skrifstofur í Hollandi og Lettlandi.
Starfsmenn eru um 50 talsins og er félagið með 50 gámaflutningabíla og 1000 gámaeiningar í rekstri en það sérhæfir sig í flutningalausnum fyrir stóra viðskiptavini, s.s. IKEA, Continental Tires og Stora Enso.
Flutningastarfsemi Van Dieren Maritime skiptist annars vegar í styttri sjóflutninga og hins vegar lestaflutninga. Nær flutningsnetið vítt og breitt um meginland Evrópu, Bretlandseyjar, Svíþjóð, Eystrasaltslöndin og allt austur til Úralfjalla í Rússlandi. Meðal stórra verkefna sem fyrirtækið hefur annast er t.d. uppbygging lestaflutninga frá Älmhult í sænsku Smálöndunum til Duisburg í Þýskalandi fyrir IKEA.
"Starfsemi Van Dieren Maritime fellur afar vel að okkar starfsemi og ljóst að samlegðaráhrifin af kaupunum munu auka hagnaðarvon beggja félaganna," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa erlendis. Velta Van Dieren Maritime var um 10 milljónir evra á þessu ári og telur Ásbjörn að hún muni aukast umtalsvert vegna samlegðaráhrifa.
Samskip reka níu gámaskip í föstum áætlunarsiglingum í Evrópu og með kaupunum á Van Dieren Maritime fær félagið aðgang að mun stærra markaðssvæði en áður og styrkir að sama skapi stöðu sína í Lettlandi. Fyrir eru Samskip t.d. með sterka stöðu í Eistlandi eftir að félagið keypti ráðandi hlut í T&E ESCO í byrjun árs en það fyrirtæki er með um 50% markaðshlutdeild í öllum gámaflutningum til og frá Eistlandi.

