Samskip - Fréttir
Samskip styrkja gerð nýs grasvallar í Vestmannaeyjum
-verður æfingavöllur meistaraflokka ÍBV og keppnisvöllur yngri flokka
Samskip hafa gert samning við ÍBV um gerð á nýjum knattspyrnuvelli í Vestmannaeyjum sem mun bera nafnið Samskipavöllurinn. Hann verður æfingavöllur fyrir meistaraflokka karla og kvenna og nýtist einnig fyrir knattspyrnumót yngri flokka sem eru árvissir íþróttaviðburðir í Eyjum.
Samskipavöllurinn er 2500 m² að flatarmáli og er staðsettur sunnan við Þórsvöllinn, þar sem áður var bílastæði. Framkvæmdir hófust í lok ágúst og í þessari viku verður lokið við að tyrfa völlinn. "Það er sjálfboðaliðum og Samskipum, sem hafa stutt okkur fjárhagslega, að þakka að þetta er orðið að veruleika," segir Birgir Stefánsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV.
Tvennskonar notkun er einkum fyrirhugð á nýja Samskipavellinum. Er ætlunin annars vegar að nýta hann sem æfingavöll fyrir meistaraflokka ÍBV í knattspyrnu á vorin - og lengja þannig æfingatímabilið hjá þessum flokkum á grasi - og hinsvegar að nýta hann sem keppnisvöll fyrir yngri flokka, þar á meðal hið árlegu pæjumót Pepsí í byrjun júní og Shellmót drengja í lok sama mánaðar. Vonir standa til að hægt verði að byrja að nota nýja Samskipavöllinn strax næsta vor en það ræðst þó af því hvernig hann kemur undan vetri. 

