Samskip - Fréttir

Auknir flutningar Samskipa milli Íslands og Evrópu

Ný siglingaleið og nýtt skip

16.12.2003

Samskip hafa ákveðið að bæta við nýrri áætlunarleið milli Íslands og Evrópu frá og með áramótum. Hefur tæplega fimm þúsund tonna gámaskip verið tekið á leigu til að sinna þessu verkefni. Það verður jafnframt 14. skipið í reglubundum siglingum hjá Samskipum en að auki er félagið með allmörg skip í ýmsum sérverkefnum.

Nýja skipið fær nafnið M/s Skaftafell og verður það þriðja skip Samskipa í föstum áætlunarsiglingum milli Íslands og Evrópu.  Siglt verður frá Reykjavík á 14 daga fresti og bætast Grundartangi, Reyðarfjörður og Þórshöfn í Færeyjum við sem nýir áfangastaðir Samskipa en aðrir viðkomustaðir Skaftafells verða Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam í Hollandi.

"Vegna stóraukinna flutninga á þessu ári höfum við verið með fjölmörg leiguskip í óreglulegum siglingum milli Íslands og meginlandsins.  Teljum við  tímabært að stíga skrefið til fulls og bæta við skipi í fastar áætlunarferðir á þessari mikilvægu flutningaleið," segir Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa.  "Um leið er þjónusta Samskipa við Austurland bætt, jafnframt því sem ýmsir möguleikar skapast til að koma vörum á markaði í Evrópu.  Það er því von okkar að viðskiptavinir taki þessari viðbót vel," bætir forstjóri Samskipa við.

Fyrir eru Samskip með tvö skip, M/s Arnarfell og M/s Helgafell í föstum áætlunarsiglingum milli Íslands og meginlands Evrópu, Bretlandseyja og Skandínavíu.  Engar breytingar verða á siglingum þeirra.

M/s Skaftafell var byggt árið 1999 og getur flutt 364 gámaeiningar  Á því eru tveir öflugir kranar sem geta hvor um sig lyft 60 tonnum eða 120 tonnum samtengdir.  Skipið er rúmir 100 metrar að lengd, burðargetan tæplega 5000 tonn og ganghraðinn  allt að 15,5 hnútar.

Ný siglingaleið

Áætlunarleið Skaftafells er sýnd með grænum lit en áætlunarleið Arnarfells og Helgafells með bláum lit.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica