Fréttatilkynning frá Impregilo
Hvað er 600 tonn að þyngd og 120 metrar að lengd?
- Impregilo fær til landsins afar öflugan bor sem er yfir 120 metrar á lengd. Verkstæðiseining og matsalur er meðal þess sem má finna í bornum sjálfum. Borinn var áður notaður til þess að bora göng undir Queens í New York.
Eftir að hafa borað sig undir Queens í New York er hin 120 metra langa Robbins Main-Beam gangaborvél loksins farin að nálgast Íslandsstrendur. Ekki er þó svo að skilja að vélin bori sig til Íslands, heldur er hún flutt með Samskipum og samstarfsaðilum frá Cleveland í Bandaríkjunum. Umrædd vél er ein af þremur sem til landsins koma vegna gerðar Kárahnjúkavirkjunar og kostar hver þeirra 1,2 milljarða króna.
Framleiðandi borsins er fyrirtækið Robbins sem getið hefur sér gott orðspor í framleiðslu bora af þessari tegund. Umræddum bor verður ætlað að heilbora alls um 50 kílómetra löng göng. Sams konar borar hafa verið notaðir við mjög stór verkefni um allan heim, en fleiri kílómetrar hafa verið boraðir með þessarri tegund bora en nokkrum öðrum borum í heiminum. Í því samhengi má nefna Ermarsundsgöngin, göng vegna risastíflu í Lesotho í Suðurhluta Afríku, göng vegna stíflugerðar í Gulá í Kína, endurnýjun holræsakerfis Hong Kong (e. Strategic Sewage Disposal Scheme) og neðanjarðarlestargöng í Brooklyn í New York.
Robbins Main-Beam borvélar eru mjög fullkomnar. Stjórnandi borsins getur fylgst með öllu sem gerist á tölvuskjám og myndavélum, allt frá borhausnum fremst til enda færibandsins aftast, sem flytur jarðveg út úr göngunum sem boruð eru á losunarsvæðin. Bornum er hægt að stýra á ferð en titringur í honum er í lágmarki sem gerir borunina skilvirkari. Stærð borsins er mikil en lengd hverrar samstæðu er yfir 120 metrar þegar allt er talið. Matsalur og verkstæðiseining eru hluti af borvélasamstæðunum. Heildarþyngd borsins og fylgihluta er alls um 600 tonn og þyngsti hluturinn, sjálf borkrónan, er um 127 tonn. Til að auðvelda flutning borkrónunnar verður hún tekin í sundur. Vegur þá þyngsti einstaki hluturinn í þessum flutningum um 75 tonn.
Það er Sigla, stórflutningadeild Samskipa, sem hefur umsjón með flutningi borsins til landsins og sér einnig um að koma honum frá Reyðarfirði á virkjanasvæðið við Kárahnjúka. Verður m.a. notast við sérstyrktan flutningavagn. Vera kann að grípa þurfi til sérstakra aðgerða sums staðar á leiðinni, s.s. á Egilsstöðum, til að flutningalestin komist leiðar sinnar. Gera þarf sérstakar ráðstafanir á nokkrum stöðum á leiðinni úr Reyðarfirði upp í Glúmstaðadal, einkum að laga beygjur á vegum.
Gert er ráð fyrir að það taki um tvo til þrjá mánuði að setja borinn saman, en borinn verður settur saman við aðgöng þrjú í Glúmstaðadal. Hafist verður handa við borun ganga í átt til Hálslóns í byrjun mars 2004.
Nánari upplýsingar um borinn:
Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilo á Íslandi, í síma 517-3100 eða 695-5908.

