Samskip - Fréttir
Flutningar á bor

Risaborinn kemur til Reyðarfjarðar í dag með Samskipum

18.12.2003

Fyrsti risaborinn af þremur sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar kemur til Reyðarfjarðar fyrir hádegi í dag með flutningaskipinu Fret Meuse á vegum Samskipa. Það er stórflutningadeildar Samskipa (Sigla) sem hefur umsjón með flutningi borsins frá Bandaríkjunum til Íslands og sér einnig um flutninginn á honum frá Reyðarfirði á virkjanasvæðið við Kárahnjúka.

Mikill viðbúnaður hefur verið hjá starfsmönnum Samskipa vegna þessara umfangsmiklu þungaflutninga og strax og skipið verður komið að bryggju um hádegisbil í dag verður hafist handa við uppskipun á bornum og fylgihlutum hans. Heildarþyngd hans er alls um 1200 tonn en hingað kemur hann í fjórum aðalpörtum auk allskyns minni fylgihluta.

Fyrsta bílalestin af fjórum af stað í nótt

Starfsmenn Samskipa ætla að koma bornum og fylgihlutum hans á áfangastað við aðgöng 3 í Glúmsstaðadal í fjórum ferðum með því að nota bílalest sem samanstendur af fimm trukkum með tilheyrandi vélavögnum og flatvögnum. Standa vonir til að fyrsta bílalestin geti lagt af stað frá Reyðarfirði seint í kvöld eða nótt og er búist við að hver ferð taki þetta 6-12 tíma, eftir aðstæðum. Samstarf er við lögregluyfirvöld vegna flutninganna og fara þeir fram að nóttu til, til að raska sem minnst umferð. Þó er ljóst að loka verður leiðinni um Fagradal, Egilsstaði og á Héraði aðfararnótt laugardags meðan bílalestin fer þar um. Þá verða flutt stykki úr bornum sem eru allt upp í átt metra breið en þyngsti hluturinn í þessum flutningum vegur um 60 tonn.

Allir hlutar risaborsins og fylgihlutir hans eiga að vera komnir á áfangastað í Glúmsstaðadal á mánudagsmorgun og þá verður hafist handa við að setja hann saman. Er gert ráð fyrir því að það taki um þrjá mánuði og því verður hægt að hefjast handa í byrjun mars við að bora þennan áfanga aðrennslisganganna, frá Glúmsstaðardal að Hálslóni.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica