Samskip - Fréttir

Miklar annir hjá Landflutningum

Fjölgun í smápakkasendingum milli ára

19.12.2003

Miklar annir hafa verið hjá Landflutningum undanfarna daga. Stöðugur straumur hefur verið af bílum og fólki með pakka og sendingar af öllum stærðum og gerðum sem komast þurfa til viðtakenda fyrir jól. Samkvæmt talningu sem gerð var í morgun er aukningin umtalsverð eða ríflega 20% sem er mjög ánægjulegt, ekki síst í ljósi mikillar samkeppni á þessum markaði sem landsmenn hafa orðið varir við að undanförnu.  Þetta er alltaf skemmtilegur tími, allir eru í góðu skapi og gaman að eiga gleðileg samskipti við viðskiptavini á þessum árstíma.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica