Samskip - Fréttir
Bor 1

Flutningur Samskipa á risabor fyrir Kárahnjúkavirkjun gengur vel

19.12.2003

Flutningur á risabornum sem nota á við gerð aðrennslisganga Kárahnjúka gengur vel en alls vegur farmurinn um 1200 tonn. Í nótt verða þyngstu og stærstu hlutar borsins fluttir á Kárahnjúkasvæðið en þeim var skipað upp úr leiguskipi Samskipa, Fret Muese, á Reyðarfirði á ellefta tímanum í morgun.

Skipið kom til Reyðarfjarðar um hádegisbil í gær frá Cleveland í Bandaríkjunum og var strax hafist handa við losun þess en það er stórflutningadeild Samskipa, Sigla, sem hefur haft veg og vanda að flutningi borsins frá Bandaríkjunum til Íslands og sér einnig um flutninginn á honum frá Reyðarfirði á virkjanasvæðið við Kárahnjúka. Til þess er notuð 2-5 bíla lest með tilheyrandi flutningavögnum og fór sú fyrsta upp á virkjunarsvæði síðastliðna nótt með allskyns fylgihluti. Var hún um 9 klukkustundir á leiðinni og gekk ferðin í alla staði vel.

Stærstu stykkin flutt í nótt

Í morgun var svo stærstu stykkjum borsins skipað upp á Reyðarfirði og verða þau flutt upp í Kárahnjúka í nótt. Hér eru engir smáhlutir á ferð því stærsta stykkið vegur hátt í 70 tonn og mun vera tæpir 8 metrar á breidd. Það er samt innan við 1/10 af heildarþyngd borsins því samansettur mun hann vera ein 800 tonn og einir 120 metrar að lengd.

Til að tryggja að flutningurinn í nótt gangi snurðulaust fyrir sig er nú unnið að því að saltbera leiðina sem bílalestin fer um og gera enn frekari ráðstafanir til að tryggja að ekkert beri út af. Loka þarf Fagradalsvegi meðan flutningalestin fer þar um sem og veginum um Egilsstaði, Hérað og Fljótsdalsheiði. Er lögreglan á Austurlandi með viðbúnað vegna flutninganna sem og umferðareftirlit Vegagerðarinnar en þessir aðilar hafa komið að skipulagningu flutninganna með Samskipum.

Starfsmenn Samskipa leggja nótt við dag

Fjölmargir starfsmenn Samskipa leggja nótt við dag meðan á þessum flutningum stendur en gífurlegt eftirlit og samhæfing verður að vera á öllum hlutum svo ekkert fari úrskeiðis í þessu flókna ferli.

Áætlað er að lokið verði við að koma öllum farminum á áfangastað í Glúmsstaðadal á mánudag og hinir borarnir tveir, sem nota á við borun aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar, eru svo væntanlegir til landsins í febrúar og mars á næsta ári.

Bor 2



Stærsti einstaki hluti borsins kominn upp á bryggju á Reyðarfirði í morgun. Hann vegur rúmlega 67 tonn er tæpir 8 metrar á breidd.

Bor 3

 

 

 Hér er svo sjállf borkrónan hífð í land og eins og sést á samanburðinum við stóra lyftarann er hún heldur engin smásmíði.

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica