Áætlunarsiglingar Skaftafellsins hafnar
Áætlunarsiglingar nýjasta vöruflutningaskips Samskipa, M/s Skaftafells, milli Evrópu og Íslands hófust kl. 10.00 í morgunn þegar skipið lét úr höfn frá Rotterdam í Hollandi áleiðis til Reyðarfjarðar en þangað er skipið væntanlegt 19. þessa mánaðar.
Skaftafellið, sem er tæplega fimm þúsund tonna gámaskip, er þriðja skipið sem Samskip eru með í föstum áætlunarsiglingum milli Íslands og Evrópu og jafnframt fjórtánda skipið í reglubundnum siglingum hjá félaginu en einnig er það með allmörg skip í ýmsum sérverkefnum.
Siglt verður á 14 daga fresti og auk Reyðarfjarðar bætast Grundartangi og Færeyjar við sem nýir áfangastaðir Samskipa en aðrir viðkomustaðir Skaftafells eru Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam.
M/s Skaftafell, sem byggt var árið 1999, getur flutt 364 gámaeiningar, burðargetan er tæplega 5000 tonn og ganghraðinn allt að 15,5 hnútar en skipið er rúmlega 100 metra langt.

