Samskip - Fréttir

Samskip kaupa hollenska flutningafyrirtækið Nedshipping

19.1.2004

Samskip hafa tekið yfir rekstur hollenska flutningafyrirtækisins Nedshipping Liner Agencies BV. Nedshipping er sérhæft í gámaflutningum milli Skandínavíu, Finnlands og meginlands Evrópu. Allir starfsmenn Nedshipping í Hollandi halda áfram störfum hjá Samskipum og heyra undir skrifstofu félagsins í Rotterdam.

Nedshipping er svokallað NVO flutningafyrirtæki (Non Vessel Operator), þ.e. félagið rekur ekki eigin skip en selur flutninga inn á siglingaleiðir annarra flutningafyrirtækja. Félagið býr yfir áratuga reynslu í flutningum milli Vestur-Evrópu og Skandínavíu og nam veltan á síðasta ári tæpum 400 milljónum króna.

Samskip hófu siglingar  milli meginlands Evrópu og Suður-Noregs í ágúst í fyrra og hafa félögin átt gott samstarf á þeirri flutningaleið.  "Kaupin á Nedshipping styrkja enn frekar stöðu okkar í Skandínavíu, ekki einungis í Noregi, heldur einnig í Svíþjóð og Finnlandi, en Nedshipping hefur einnig haft sterka stöðu á þeim mörkuðum.  Viðskiptavinir Nedshipping eiga því enn greiðari aðgang nú en áður að öllu flutningakerfi okkar," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa erlendis.  "Jafnframt náist fram umtalsverð samlegðaráhrif með samruna Nedshipping inn í Samskip."

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica