Samskip - Fréttir
Samskipamenn fagna komu nýs vöruflutningaskips
-opnar nýja möguleika í útflutningi segir Knútur G. Hauksson forstjóri
Austfirðingar samfögnuðu með Samskipum í dag í tilefni af komu nýjasta vöruflutningaskips félagsins, M/s Skaftafells, til Reyðarfjarðar. Þetta er fyrsta áætlunarferferð skipsins á nýrri siglingaleið milli Íslands og meginlands Evrópu. Skaftafellið kom til Reyðarfjarðar í gær frá Rotterdam í Hollandi og heldur utan aftur í kvöld til Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam.
Siglt verður á 14 daga fresti milli Evrópu og Íslands með viðkomu í Færeyjum og verða Reykjavík og Grunartangi framvegis fastir viðkomustaðir skipsins hérlendis, ásamt Reyðarfirði.
"Það hefur lengi verið á dagskrá hjá Samskipum að styrkja stöðu félagsins á Austurlandi," sagði Knútur G. Hauksson forstjóri m.a. í hófi um borð í Skaftafellinu í Reyðarfjarðarhöfn í dag. "Hin miklu umsvif hér eystra og okkar þáttur í þeim, hafa nú gert okkur kleift að hefja þessar siglingar sem jafnframt skapa nýtt tækifæri i útflutningi þar sem siglt er beint héðan til Bretlands og meginlands Evrópu."
Bæði sveitarstjórnarmenn og fulltrúar fyrirtækja eystra mættu í dag til að samfagna Samskipamönnum og Þorbergur Hauksson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, afhenti forstjóra Samskipa blómakörfu í tilefni þessara tímamóta og bauð félagið velkomið í byggðarlagið. Hann fagnaði starfsemi Samskipa á Reyðarfirði og sagðist vona að samstarfið yrði gæfuríkt, það væru vissulega tímamót að fastar áætlunarsiglingar væru hafnar að nýju til Reyðarfjarðar.
Skaftafellið, sem er tæplega fimm þúsund tonna gámaskip, er þriðja skipið sem Samskip eru með í föstum áætlunarsiglingum milli Íslands og Evrópu og jafnframt fjórtánda skipið í reglubundnum siglingum hjá félaginu. Skipið er rúmlega 100 metra langt, byggt árið 1999 og getur flutt 364 gámaeiningar.

Þorbergur Hauksson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar afhendir Knúti G. Haukssyni forstjóra Samskipa blómakörfu í tilefni þessara tímamóta.

Gestir um borð í Skaftafellinu í dag. Hér má m.a sjá Smára Geirsson, formann bæjarráðs Fjarðabyggðar og fyrrverandi formann Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Skaftafellið í höfn á Reyðarfirði.

