Samskip - Fréttir
Samskip og Junior Achievement í samstarfi
Fréttatilkynning frá JAI
Samskip hf. eru aðilar að Junior Achievement á Íslandi (JA) sem heldur úti viðskiptatengdum námskeiðum fyrir grunn- og framhaldsskólanema. Eitt starfsár er að baki og er ánægjulegt að Samskip senda nú í annað sinn einn starfsmanna sinna til að starfa sem ráðgjafi á námskeiði sem heitir Fyrirtækjasmiðjan. Fyrirtækjasmiðjan er námskeið fyrir framhaldsskólanema um undirbúning, stofnun og rekstur fyrirtækja. Um er að ræða raunrekstur í 13 vikur. JA tengir saman atvinnulíf og skóla með þeim hætti að senda fólk úr atvinnulífinu, svokallaða ráðgjafa, inn í skólana til að leiða námskeiðið áfram. Kristján Óskarsson frá innflutningsdeild Samskipa var á haustönn ráðgjafi í Verslunarskólanum hjá 6. bekk. Í bekk Kristjáns var stofnað fyrirtækið YOYO. Fyrirtækið vann gríðarlega vel og skilaði frábærum árangri undir leiðsögn Kristjáns sem miðlar reynslu sinn af eigin starfi, menntun og reynslu. Skilaði hann hlutverki sínu á metnaðarfullan hátt. Samskip ákvaðu að hleypa Kristjáni út aftur og á vorönn mun hann sinna ráðgjafahlutverki fyrir bekk í Menntaskólanum við Sund. Einnig mun annar starfsmaður Samskipa koma til liðs við JA sem ráðgjafi á námskeiði fyrir grunnskólanema í yngstu bekkjardeildum. Það er mikill fengur fyrir Junior Achievement að eiga góð tengsl og samstarf við öflug fyrirtæki eins og Samskip sem leggja sitt af mörkum til að bæta og auka menntun ungmenna í landinu. JA þakkar Samskipum og Kristjáni gott samstarf með von um áframhaldandi velgengni.

