Samskip - Fréttir

Bilun í Helgafellinu við Noreg

2.2.2004

Skömmu fyrir hádegi í gær varð bilun í flutningaskipi Samskipa, Helgafellinu, þegar það var statt um 30 mílur vestur af Stavanger í Noregi. Helgafellið var þá nýfarið frá Moss á leið sinni til Íslands.

Veður er gott á þessum slóðum, góð spá og engin hætta á ferðum. Um borð er 11 manna áhöfn - allt Íslendingar og amar ekkert að þeim.

Skipið sigldi fyrir eigin vélarafli til Stavanger í Noregi í fylgd dráttarbáts og mun leggjast að bryggju á næstu klukkustundum.

Einhver röskun verður á áætlun Helgafellsins vegna þessa.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica