Samskip - Fréttir

Nýtt skip vegna bilunar í Helgafelli

2.2.2004

Vegna bilunar í Helgafellinu hafa Samskip tekið á leigu skip í Rotterdam sem halda mun til Stavanger og taka farminn og flytja til Íslands. Áætlað er að hefja lestun á fimmtudaginn 5. febrúar og áætlaður komutími til Reykjavíkur er mánudagurinn 9. febrúar.

Helgafellið fer til Danmerkur í viðgerð og er ekki vitað nákvæmlega hvenær það kemur aftur inn í áætlun.

Viðskiptavinum er bent á að fylgjast með frekari fréttum á heimasíðu Samskipa.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica