Samskip - Fréttir
Nýtt frystiskip í þjónustu Samskipa
-verður í siglingum milli Íslands og Eystrasaltslandanna
Til að mæta aukinni þörf fyrir flutninga til og frá Íslandi hafa Samskip leigt 3000 tonna frystiskip sem fengið hefur nafnið M/s Jökulfell.
Skipið var tekið í þjónustu félagsins í dag. Fyrsta verkefnið er að flytja húseiningar frá Noregi til Reyðarfjarðar. Þar lestar Jökulfellið frosinn fisk sem fluttur verður til Eystrasaltslandanna.
Jökulfellið hét áður Nordland Saga og var smíðað í Danmörku árið 1989. Það hefur verið í siglingum við Noreg og meginland Evrópu að undanförnu. Skipið er um 87 metra langt, ganghraðinn 13,8 hnútar og burðargetan 3000 tonn en einnig getur það flutt allt að 140 gáma. 11 manns eru í áhöfn.
Jökulfellið er 15 skipið í reglubundnum siglingum fyrir Samskip og verður í ferðum milli Íslands og Eystrasaltslandanna, auk tilfallandi verkefna erlendis.

