Samskip - Fréttir
Ikea lest

Samskip taka við rekstri járnbrautalestar milli Svíþjóðar og Þýskalands

6.2.2004

Hollenska flutningafyrirtækið Van Dieren Maritime BV (VDM), sem Samskip eignuðust 80% hlut í sl. haust, hefur tekið við rekstri járnbrautaflutningalestar milli Älmhult í Svíþjóð og Herne í Þýskalandi. Samningurinn er til tveggja ára.

Ikea kom þessum lestasamgöngum á fyrir nokkrum árum til að geta flutt framleiðslu sína frá Svíþjóð á markað í Evrópu. Í byrjun þessa árs var gengið til samninga við VDM um að taka við rekstrinum. Annast félagið allt sölu- og markaðsstarf vegna flutninga með lestinni, sem fer fimm daga vikunnar fram og til baka milli Älmhult í sænsku Smálöndunum og Herne í Þýskalandi, eða alls 10 ferðir á viku.

Flutningsgeta VDM lestarinnar er um 30 þúsund gámaeiningar á ári og er um mikilvægan þátt að ræða í rekstri félagsins, því gert ráð fyrir að veltan af lestarflutningunum og flutningum tengdum þeim losi tæpan milljarð íslenskra króna á þessu ári.

Sjá einnig heimasíðu Van Dieren Maritime: www.vandierenmaritime.nl

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica