Samskip - Fréttir
Óhapp sökum óveðurs
Kassabíll með beislisvagn, sem lestaði á Landflutningum föstudaginn 6. febrúar vörur til Egilsstaða, lenti í hremmingum aðfararnótt laugardags.
Bílstjórinn þurfti að yfirgefa bílinn við Hestgerði í Suðursveit sökum óveðurs. Sama átti við um bílstjóra frá öðrum flutningafyrirtækjum sem voru á ferð á sömu slóðum. Fékk bílstjórinn inni á sveitabæ í næsta nágrenni.
Síðar um nóttina fauk vagninn á hliðina og dró bílinn niður með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á vagninum. Önnur hlið vörukassans á bílnum skemmdist.
Í bílnum var almenn vara og ljóst er að miklar skemmdir hafa orðið á farmi bílsins en þar var m.a. mikið af matvöru. Í vagni voru umbúðir og grófvara og líklegt er að sú frakt hafði sloppið ágætlega.
Eins og stendur er öll fraktin auk bíls og vagns á Höfn og eru tryggingafélög að meta skemmdirnar.

