Samskip styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg
Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) og Samskip hafa undirritað styrktarsamning sem felur í sér að Samskip styrkja SL við kaup á 2 björgunarskipum og flutning þeirra heim til Íslands frá Bretlandi. Nemur verðmæti samningsins samtals 6 milljónum króna. Með þessu leggja Samskip sitt lóð á vogarskálarnar til að auka öryggi sjófarenda og hjálpa samtímis SL að fjölga björgunarskipum félagsins hringinn í kringum landið en sóknarfæri er nú í þeim efnum.
Endurnýjun og fjölgun björgunarskipa
Slysavarnafélagið Landsbjörg er nú með níu björgunarskip í rekstri sem staðsett eru í Reykjavík, á Rifi, Ísafirði, Siglufirði, Raufarhöfn, í Neskaupstað, Vestmannaeyjum, Grindavík og Sandgerði. Er stefnt að því að fjölga þeim og staðsetja einnig skip á sunnanverðum Vestfjörðum, við Húnaflóa, á Vopnafirði, Höfn í Hornafirði og í Hafnarfirði, ásamt því að endurnýja björgunarskipin á Siglufirði, í Neskaupstað, Vestmannaeyjum og Sandgerði. Hefði það ótvírætt öryggisgildi fyrir sæfarendur í kringum landið þar sem viðbragðstími á hafsvæðinu, sem sjálfvirka tilkynningarskyldan nær til, yrði innan við þrjár klukkustundir á flestum svæðum.
Samningurinn við Samskip er mikilvægur þáttur í þessum áformum SL, því hann felur í sér fjárhagslegan stuðning samals að upphæð 6 milljónir króna til kaupa á tveimur björgunarbátum af ARUN gerð og heimflutnings á þeim frá Bretlandi. Á móti verður merki Samskipa á nýju bátunum og bátalægi þeirra næstu árin.
Upphaf núverandi björgunarskiparekstrar
Slysavarnafélagið Landsbjörg á aðild að Alþjóðlegu sjóbjörgunarsamtökunum (ILF) og hafa myndast mikil og góð sambönd við önnur sjóbjörgunarfélög í tengslum við það starf. Um miðjan síðasta áratug skapaðist tækifæri til uppbyggingar núverandi björgunarskipareksturs er sjóbjörgunarsamtök í Evrópu hófu umfangsmikla endurnýjun á björgunarskipaflota sínum. Bauðst SL þá að kaupa nokkur notuð björgunarskip frá þessum samtökum á verði sem var langt undir raunhæfu markaðsverði. Var mikil vinna lögð í undirbúning og að ákveða, með tilliti til sjóslysa og sjósóknar, hvar björgunarskipanna væri mest þörf. Gerðu áætlanir ráð fyrir 10 björgunarskipum og höfðu þau áform að mestu gengið eftir í árslok 1999, því þá voru skipin orðin níu talsins.
Þau skip sem reynst hafa best með tilliti til getu og rekstrarkostnaðar eru af gerðinni ARUN frá Royal National Lifeboat Institution (RNLI) í Bretlandi. Eru fjögur slík skip til hérlendis og hefur verið áhugi hjá SL að eignast fleiri. Því var tækifærið gripið þegar fréttist að RNLI ætlaði á næstu tveimur til þremur árum að skipta út þeim skipum af ARUN gerð sem eftir eru í þjónustu félagsins fyrir nýrri skip. Eru kaupin á ARUN-bátunum sem Samskip styrkja, fyrsti áfanginn í þessari fjölgun og endurnýjun björgunarskipaflota SL.
Markmið Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Skipsskaðar, slys og veikindi um borð í skipum eru staðreynd. Með öflugu neti björgunarskipa umhverfis landið er hægt að bregðast við með hraða og öryggi til að koma sjómönnum til aðstoðar þegar á þarf að halda við allar aðstæður. Markmið Slysavarnafélagsins Landsbjargar er að áhafnir björgunarskipanna séu vel þjálfaðar og geti sinnt öllum erfiðustu útköllum og sjúkraflutningum sem þörf er á sjó, við hvaða aðstæður sem er.


