Samskip - Fréttir

Samskip aðalstyrktaraðilar Matur 2004

23.2.2004

Samskip eru aðalstyrktaraðilar sýningarinnar Matur 2004 sem haldin verður dagana 26.- 29. febrúar í Fífunni, sýningahöll Kópavogsbæjar. Matvælasýningarnar í Kópavogi eru stærstu vörusýningar sinnar tegundar á Íslandi og eru sýnendurnir fyrirtæki sem tengjast mat og matargerð á einn eða annan hátt og skipta þeir hundruðum í ár.

Samskip flytja til landsins gríðarlegt magn matvæla og hafa ávallt lagt mikinn metnað í að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru til matvælafyrirtækja og voru til að mynda fyrst að taka upp GÁMES kerfið. Fjöldi viðskiptavina Samskipa tekur þátt í sýningunni og er aðkoma okkar að sýningunni í ár og árið 2002 hluti þeirrar stefnu að kynnast viðskiptavinum og þeirra þörfum sem best til að geta veitt þeim afburðaþjónustu.

Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á www.matur2004.is

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica