Samskip - Fréttir

Cruise Iceland stofnað

24.2.2004

Rúmlega 70 manns mættu á fyrsta fund Cruise Iceland samtakanna sem haldinn var á Hótel Sögu 20. febrúar s.l. Á fundinum voru flutt erindi um móttöku skemmtiskipa í hinum ýmsu höfnum landsins og fram kom að sumarið 2004 verður það stærsta í komum skemmtiskipa til landsins. Til Reykjavikur koma 68 skip samanborið við 58 árið 2003 og Akureyringar eiga von á 53 skipum í samanburði við 43 í fyrra. Einnig var fjallað um öryggismál í höfnum en ný lög þar að lútandi taka gildi þann 1. júlí í ár sem breyta munu ýmsu við móttöku skipanna og meðal annars aðgengi almennings að hafnarsvæðum.

Á fundinum kom fram að samtökin munu sérstaklega leggja áherslu á að markaðssetja Ísland sem áhugaverðan áfangastað skemmtiskipa bæði í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. M.a. verður hugað að möguleikum þess að fá fleiri skip til þess að skipta um farþega á Íslandi og einnig verða möguleikar þess efnis að fá skip til þess að sigla hringferðir í kringum Ísland sumarlangt skoðaðir.  Samtökin munu einnig stuðla að frekari vöruþróun í framboði afþreyingar fyrir farþega skipanna og skoða möguleika á frekari verslun við farþega og útgerð skipanna.

 

Í stjórn Cruise Iceland voru kjörnir:

Ágúst Ágústsson, formaður, Reykjavíkurhöfn

Einar Gústavsson, varaformaður, Ferðamálaráð Íslands í Bandaríkjunum

Pétur Ólafsson, Akureyrarhöfn

Gunnar Rafn Birgisson, Ferðaskrifstofan Atlantik

Svava Johansen, Verslunin 17

 

Í varastjórn voru kjörnir:

Tryggvi Harðarson, Seyðisfirði

Ársæll Harðarson, Ferðamálráði Íslands

Ingvar Sigurðsson, Samskip hf

Guðmundur M. Kristjánsson, Ísafirði

Edda Sverrisdóttir, Verslunin Flex

 

Frekari upplýsingar veitir Ágúst Ágústsson, sími 525 8904
E-mail agag@reykjavikurhofn.is

 

 

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica