Samskip - Fréttir
Voráætlun Herjólfs
Í dag tók gildi voráætlun Herjólfs. Í voráætlun eru ferðir þriðjudaga, miðvikudaga og laugardaga frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og frá Þorlákshöfn kl. 12.00.
Mánudaga, fimmtudaga, föstudaga og sunnudaga eru ferðir frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og kl. 16.00 og frá Þorlákshöfn kl. 12.00 og kl. 19.30.
Voráætlun gildir til 30. apríl en þá tekur sumaráætlun við.
Nánari upplýsingar um siglingar Herjólfs er að finna á heimasíðu Herjólfs www.herjolfur.is og á síðu 415 í Textavarpi RÚV, auk þess sem upplýsingar eru veittar í síma 481 2800.

