Samskip - Fréttir
Aðalfundur Samskipa í dag
Aðalfundur Samskipa verður haldinn í dag, fimmtudaginn 4. mars, í Salnum í Kópavogi og hefst kl. 17:00.
Á dagskrá eru í fyrsta lagi venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt. 8. grein samþykkta félagsins, í öðru lagi tillaga stjórnar um að félaginu sé heimilt að kaupa eigin hluti samkvæmt 55. grein laga nr. 2 frá 1995 um hlutafélög, og í þriðja lagi önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, ársreikningur og endanlegar tillögur liggja nú frammi á skrifstofu Samskipa, að Holtabakka við Holtaveg.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við upphaf aðalfundar í Salnum, nk. fimmtudag.

