Samskip - Fréttir

Rekstur Samskipa árið 2003

Góð afkoma og vöxtur heima og erlendis

4.3.2004

Hagnaður Samskipa var 366 milljónir króna í fyrra sem er 124 milljónum króna betri afkoma en árið 2002 en þá var hagnaður félagsins 242 milljónir króna eftir skatta. Heildartekjur Samskipa á liðnu ári námu 17,3 milljörðum króna og hækkuðu um 3,2 milljarða frá árinu áður, eða um 23 af hundraði. Tæplega helmingur teknanna kemur nú frá erlendri starfsemi félagsins. Rekstrarafkoma samstæðunnar fyrir fjármagnsliði batnaði um tæplega 512 milljónir milli ára, var ríflega 70 milljónir árið 2002 en tæplega 582 milljónir í fyrra.

Gott ár í rekstri Samskipa

Árið 2003 var gott í rekstri Samskipa og varð umtalsverður bati á nær öllum sviðum starfseminnar. Uppsveifla var í innflutningi til Íslands og héldu Samskip vel sínum hlut í samkeppninni. Gerðir voru samningar við nýja, stóra viðskiptavini og einnig jókst bifreiðainnflutningur umtalsvert milli ára. Allnokkur aukning varð einnig á útflutningi þó svo markaðsaðstæður hafi verið erfiðar. Þá varð mikil aukning í innanlandsflutningum Landflutninga-Samskipa, ekki síst vegna aukinna verkefna félagsins á Austurlandi, og ánægjulegur viðsnúningur varð í rekstri Jóna Transport, dótturfyrirtækis Samskipa, sem skilaði góðri afkomu.

Markvisst var einnig unnið að áframhaldandi uppbyggingu Samskipa erlendis. Styrkti félagið umtalsvert stöðu sína í flutningum í Norðursjó og á Eystrasalti, þar sem skipum á föstum áætlunarleiðum fjölgaði úr tveim í níu. Þá styrkja kaup Samskipa á 80% hlut í hollenska flutningafyrirtækinu Van Dieren Maritime BV mjög stöðu félagsins á flutningamarkaði í Evrópu. Með opnun skrifstofa í Suður-Kóeru og Kína styrkti félagið einnig umtalsvert stöðu sína á alþjóðamarkaði.

Framundan er áframhaldandi útrás og vöxtur félagsins, nú er unnið að kaupum á flutningafyrirtæki í Moskvu sem og opnun á skrifstofu í Astrakhan í Rússlandi, til að styrkja stöðu félagsins enn frekar á Kaspíahafssvæðinu.

Samskip voru með 16 skip í reglubundnum áætlunarsiglingum um síðastliðin áramót, auk fjölda leiguskipa í tímabundnum verkefnum. Stöðugur vöxtur hefur einkennt félagið frá stofnun árið 1990 og starfrækir það nú 31 skrifstofu í 14 löndum, auk þess sem umboðsmenn eru starfandi um allan heim.

Markviss uppbygging heima fyrir

Sem fyrr var unnið að því að auka og bæta þjónustu og rekstur félagsins á Íslandi og var m.a. lokið við stækkun Ísheima, frystivörumiðstöðvar Samskipa við Holtabakka. Er aðstaðan þar nú einhver sú besta sem um getur við Norður-Atlantshaf.

Einnig var hafist handa við byggingu nýrrar 25 þúsund m² vörumiðstöðvar og höfuðstöðva félagsins við Kjalarvog. Verklok eru áætluð í lok þessa árs og verður þá öll starfsemi Samskipa í Reykjavík komin undir eitt þak - í stærstu vörumiðstöð landsins þar sem hægt verður að samþætta betur þjónustuna til hagsbóta fyrir viðskiptavini og félagið.

Jafnframt var gengið frá smíði á tveimur nýjum skipum fyrir félagið sem tekin verða í gagnið á næsta ári. Þau eru sérhönnuð með þarfir Samskipa í huga og leysa af hólmi eldri skip félagsins, Arnarfell og Helgafell. Þá var ákveðið að bæta við nýrri siglingaleið milli Íslands og Evrópu vegna aukinna millilandaflutninga og bættust tvö ný skip, Skaftafell og Jökulfell, við skipastól Samskipa í byrjun þessa árs.

Hluthafar Samskipa eru nú 390 að tölu. Áttu þrír hluthafar yfir 10% af útgefnu hlutafé í árslok. Þeir eru Ker hf. (49,15%), Mastur hf. (10,8%) og Olíuverslun Íslands hf. (10,32%). Aðalfundur félagsins verður haldinn í Salnum í Kópavogi í dag, 4. mars 2004.

 

Lykiltölur úr samstæðureikningi

2003

2002

M.kr.

M.kr.

Rekstur:

Rekstrartekjur

17.328

14.093

Rekstrargjöld fyrir leigugjöld og afskriftir

13.882

12.247

Hagnaður fyrir leigugjöld og afskriftir (EBIDTAR)

3.446

1.846

Leigugjöld

2.353

1.290

Afskriftir

511

486

Hagnaður fyrir fjármagnsliði

582

70

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

(101)

207

Áhrif hlutdeildarfélaga / minnihluta

(16)

29

Reiknað tekjuskattur

(99)

(64)

Hagnaður

366

242

 

 

 

Efnahagur:

 

 

Eignir

7.631

6.817

Skuldir og skuldbindingar

5.375

4.727

Eigið fé

2.256

2.090

 

 

 

EBITDAR

3.446

1.846

EBITDA

1.093

556

Veltufjárhlutfall

1,22

1,33

Eiginfjárhlutfall

30%

31%

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica