Samskip - Fréttir

Klaksvík
Klaksvík
Pálmar Ó. Magnússon hjá Samskipum og Heini á Borg hjá Strandfaraskip Landsins handsala samninginn.

Samskip semja við Farmaleiðir í Færeyjum

Fastar áætlunarferðir til Klaksvík á 14 daga fresti

10.3.2004

Samskip hafa undirritað samning við flutningafyrirtækið Farmaleiðir í Færeyjum um að það annist afgreiðslu skipa félagsins í Klaksvík og alla flutninga fyrir Samskip innan Færeyja. Fyrsta viðkoma m/s Skaftafells í Færeyjum verður 1. apríl nk., og síðan á 14 daga fresti á leiðinni frá Reyðarfirði til Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam í Hollandi.

Flutningafyrirtækið Farmaleiðir er hluti af Strandfaraskip Landsins, sem er í eigu færeysku landsstjórnarinnar. SL er með 10 ferjur í rekstri í ferðum milli eyjanna, 24 vöruflutningabíla og 50 langferðabílareka og eru starfsmenn um 240 talsins.

"Við erum mjög ánægð með að hafa náð samningum við jafn trausta samstarfsaðila í Færeyjum og SL og Faramaleiðir eru," segir Pálmar Ó. Magnússon framkvæmdastjóri hjá Samskipum. "Aðstaða í Klaksvik er í uppbyggingu og nýtt hafnarsvæði verður tekið í notkun snemma árs 2005 og verður Klaksvik þar með öflug útflutningshöfn. Auk þess er verið að vinna að jarðgangagerð milli Klaksvíkur og Leirvíkur sem bætir mjög allar samgöngur. Allt þetta ásamt hinu öfluga flutningakerfi SL og Farmaleiða tryggir skjóta og örugga flutninga." Að sögn Pálmars er aðaláhersla lögð á flutning fiskafurða frá Færeyjum til að byrja með, enda ýmsir spennandi möguleikar sem skapast með tengingu við flutninganet Samskipa í Evrópu.

Viðkoma Skaftafellsins í Færeyjum er hluti af nýrri áætlunarleið Samskipa milli Íslands og Evrópu sem siglingar hófust á um sl. áramót. Er farið með tveggja vikna fresti frá Rotterdam til Reykjavíkur og á útleiðinni er komið við á Grundartanga, Reyðarfirði, Færeyjum og Immingham.

M/s Skaftafell, sem tekið var á leigu til að sinna þessum siglingum, er tæplega 5.000 tonna gámaskip, smíðað árið 1999 og getur flutt 364 gámaeiningar.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica