Samskip styrkja UNICEF
Mánudaginn 15. mars var undirritaður samstarfssamningur milli Samskipa, Pharmaco, Baugs, Allianz og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Með þessum samningi er lokaáfanga náð við stofnun UNICEF á Íslandi og starfsgrundvöllur þess tryggður, sem þýðir að fjáröflun á vegum UNICEF á Íslandi mun nú renna til þurfandi barna víða um heim. Með samningnum sýna Samskip, Pharmaco, Baugur og Allianz frumkvæði og styrk sem mun stuðla að bættum heimi fyrir börn.
UNICEF var stofnað árið 1946 og er einn virtasti sjóður innan Sameinuðu þjóðanna. Landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi miðar að því að kynna UNICEF og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og styrkja hin margþættu verkefni UNICEF með fjáröflun.

