Samskip taka við skrifstofu TECO LINES í Liverpool
Samskip auka enn þjónustu sína á Bretlandseyjum frá og með næstu mánaðamótum þegar félagið tekur við rekstri umboðsskrifstofu eistneska skipafélagsins TECO LINES AS í Liverpool af félaginu Vogt & Maguire Liner Ltd. Þetta er önnur skrifstofa Samskipa á Bretlandseyjum en aðalskrifstofa félagsins er í Immingham á austurströnd Englands.
Siglingar Samskipa til og frá Bretlandseyjum hafa aukist umtalsvert á liðnu ári. Arnarfell og Helgafell koma vikulega við í Immingham og frá því Skaftafellið hóf reglubundnar áætlunarsiglingar milli Íslands og Evrópu hefur það viðkomu hálfsmánaðarlega í Immingham.
Þá eru ferðir tvisvar í viku milli Immingham og Riga í Lettlandi á vegum Samskipa. TECO LINES, sem Samskip eignuðust helmingshlut í fyrir rúmu ári, er auk þess með fjögur gámaskip í vikulegum áætlunarsiglingum milli Felixstowe á Bretlandseyjum og Hollands, Belgíu, Þýskalands, Finnlands og Eistlands.
Aukning hefur einnig orðið á öðrum sviðum hjá Samskip Ltd., dótturfyrirtæki Samskipa á Bretlandseyjum. Framkvæmdastjóri Samskip Ltd. er Simon Dwyer.
Stöðugur vöxtur hefur einkennt rekstur Samskipa frá stofnun félagsins árið 1990 og með tilkomu Liverpool-skrifstofunnar starfrækir það 32 skrifstofur í 14 löndum, auk þess sem umboðsmenn félagsins eru starfandi um allan heim.

