Samskip - Fréttir
Risabor númer 2 á leið til landsins með Samskipum
Annar risaborinn af þremur sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar er væntanlegur til landsins á hádegi á morgun með skipi frá Bandaríkjunum. Vegur farmurinn samtals um eittþúsund tonn og á flutningur frá Reyðarfirði upp á virkjunarsvæðið að hefjast aðra nótt.
Það eru stórflutningadeild Samskipa sem hefur umsjón með flutningi borsins frá Bandaríkjunum til Reyðarfjarðar og Landflutningar hafa annast undirbúning flutninganna frá Reyðarfirði upp á virkjunarsvæðið við Kárahnjúka.
Risaborinn, sem verður notaður í aðgöngum 2 við Axará, kemur til Reyðarfjarðar á hádegi á morgun með m/s BBC Singapore frá Philadelphia í Bandaríkjunum og hefst uppskipun síðdegis á morgun. Farmurinn samanstendur af 2.311 m³ af vöru í lausu (772 tonn) og 29 gámaeiningum (257 tonn), þannig að samtals er um að ræða yfir 1.000 tonna sendingu. Vegur þyngsta einstaka stykkið rúm 67 tonn og er tæpir 6 metrar á breidd, sem er svipað og þegar fyrsti risaborinn var fluttur til landsins, skömmu fyrir síðustu jól.
Fyrirkomulag flutninganna frá Reyðarfirði að aðgöngum 2 við Axará verður með svipuðu sniði og síðast segir Gunnar Jónsson hjá Samskipum, sem stýrir flutningunum. Akstursplan hefur verið samþykkt af lögregluyfirvöldum í Fjarðabyggð og á Austur-Héraði. Það miðast við að hefja flutninga á þyngstu og stærstu stykkjunum aðra nótt og verður þá lokað tímabundið fyrir umferð um veginn um Fagradal, Egilsstaði, Hérað og Fljótsdalsheiði á meðan flutningalestin fer þar um. Er stefnt að því að ljúka flutningum á öllum lausum hlutum úr bornum á 3-4 nóttum. Gunnar segir aðstæður eystra núna mun betri til flutninga en fyrir jól. Einnig er leiðin að aðgöngum 2 við Axará heldur styttri en að aðgöngum 3 í Glúmsstaðadal, eða sem nemur tveggja tíma akstri.
Undirbúningur er einnig hafinn hjá Samskipum á flutningi þriðju borvélarinnar til landsins. Hún er væntaleg til Reyðarfjarðar með m/s BBC Iceland upp úr miðjum apríl, einnig frá Phildadelphia í Bandaríkjunum. Sú borvél mun verða staðsett í aðgöngum 1 á Teigsbjargi.

