Skipulagsbreytingar hjá Samskipum í Þýskalandi
Harold Donselman hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Samskipa GmbH í Þýskalandi en Ásbjörn Gíslason hefur gengt því starfi samhliða forstjórastarfinu. Donselman hefur verið aðstoðar framkvæmdastjóri hjá Samskipum í Þýskalandi frá 2002. Hann mun hafa aðsetur í Bremen.
Sömuleiðis hefur Dierk Tonnemacher verið skipaður aðstoðarframkvæmdastjóri Samskipa GmbH en hann verður með aðsetur í Hamborg. Tonnemacher hefur starfað hjá Samskipum í Hamborg undanfarin 3 ár og gengt stöðu yfirmanns skrifstofunnar þar.
Bernd Osmer hefur verið gerður að yfirmanni "Samskip Logistics" í Þýskalandi með aðsetur í Bremen. Osmer hefur starfað hjá Samskipum frá 1985.
Samtals starfa 40 starfsmenn á skrifstofum Samskipa í Þýskalandi.

