Samskip - Fréttir
Flutningur á risabor
Flutningur á öðrum hlutanum af bornum stóra vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka gekk vel og kom síðasta bílalestin af fjórum í nótt upp á Kárahnjúka.
Einn hluti borsins (40t) er eftir á Reyðarfirði sem keyrt verður uppeftir um hádegið í dag. Þegar hann verður kominn til skila á einungis eftir að flytja þá 30 gáma er fylgdu bornum.
Síðasti hlutinn af risabornum lagði af stað til Íslands í gær frá Philadelphia með M/V BBC Iceland og er áætluð koma til Reyðarfjarðar 18.-20. apríl.

