Samskip - Fréttir
Bás Samskipa 5510

Samskip í áttunda sinn á Evrópsku sjávarútvegssýningunni

11.5.2004

Evrópska sjávarútvegssýningin (European Seafood Exposition) í Brussel var haldin í byrjun maí. Sýningin er að flestra mati mikilvægasta sýningin á sviði sjávarútvegs sem haldin er á ári hverju. Alls tóku liðlega 1.230 fyrirtæki frá 75 löndum þátt í sýningunni í ár og hefur hún aldrei verið stærri.

Samskip tóku nú þátt í Evrópsku sjávarútvegssýningunni í áttunda sinn og var almenn ánægja með hvernig til tókst. Mjög margir, bæði gestir og sýnendur, lögðu leið sína á bás Samskipa til að spjalla og spá í spilin og ekki spillti harðfiskurinn frá Eskifirði fyrir en hann á sér dyggan hóp aðdáenda.

Þá sóttu um 230 manns glæsilegt kvöldverðarboð Samskipa á Metropole hótelinu og skemmtu sér hið besta.

Boð í Brussel 2004














 

 

Það voru þær Íris Magnúsdóttir og Anna Guðný Aradóttir sem höfðu veg og vanda að skipulagningu sýningarinnar fyrir hönd Samskipa og voru þær þreyttar en ánægðar að sýningunni lokinni. "Það er bæði lærdómsríkt og skemmtilegt að taka þátt í þessari sýningu" segir Íris en þetta var í annað sinn sem hún vinnur við sýninguna. "Við hittum viðskiptavinina undir öðrum kringumstæðum en venjulega og það er ánægjulegt að geta verið til staðar, gefið kaffi og svarað spurningum allt eftir því sem við á," segir Íris Magnúsdóttir.

Anna Guðný og Íris

 

 

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica