Samskip - Fréttir

Björgunarskip SL með Samskipum til Reyðarfjarðar

Annað tveggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar (SL) sem Samskip styrkja kaup á er nú komið heilu og höldnu til landsins.

19.5.2004

Annað tveggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar(SL) sem Samskip styrkja kaup á er nú komið heilu og höldnu til landsins og mun innan tíðar leysa af hólmi björgunarskipið Hafbjörgina í Neskaupstað. Búist er við því að hitt björgunarskipið verði flutt til landsins með haustinu.
Björgunarbátur á Reyðarfirði

Nýja björgunarskipið kom til Reyðarfjarðar með Skaftafellinu aðfararnótt laugaradags frá Immingham á Bretlandseyjum. Er flutningurinn hluti af styrktarsamningi SL og Samskipa sem undirritaður var í byrjun þessa árs. Hann felur í sér sex milljón króna stuðning Samskipa við SL vegna kaupa og flutnings á tveimur notuðum björgunarskipum af Aron gerð af konunglega breska sjóbjörgunarfélaginu (RNLI).

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica