Samskip - Fréttir
Flutningur á bor

Þriðji og síðasti risaborinn kominn á Kárahnjúkasvæðið

24.5.2004

Flutningum á risaborunum þremur sem notaðir verða til að gera aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar lauk aðfaranótt miðvikudags þegar Landflutningar -Samskip fluttu síðasta stykkið úr borvél 3 í lögreglufylgd frá Reyðarfirði að aðgöngum 1 á Teigsbjargi. Lauk þar með einhverjum mestu þungaflutningum sem átt hafa sér stað hér á landi en farmurinn - borarnir þrír og fylgihlutir - vó alls um 3.600 tonn!

Flutningarnir frá Reyðarfirði að Teigsbjargi gengu vel að sögn Andrésar Björnssonar, verkefnisstjóra hjá Samskipum. Í síðustu ferðinni var m.a. flutt uppeftir stykki sem er 42 tonn að þyngd og svo breitt að lögreglan þurfti að loka veginum meðan flutningalestin fór um. Aðfaranótt sl. laugardags var sjálf borkrónan flutt að Kárahnjúkum frá Eskifirði en þangað kom hún daginn áður með skipi frá Philadelphiu í Bandaríkjunum. Aðrir hlutar bors númer 3 voru hins vegar fluttir til Reyðarfjarðar um miðjan síðasta mánuð með BBC Iceland og geymdir þar á athafnasvæði Samskipa uns flutningarnir hófust í liðinni viku. Skýringin á því að borkrónan kom ekki til landsins með sama skipi og hinir hlutar borsins mun vera sú að ekki náðist að koma þessu þunga stykki í tæka tíð til skips vestra, vegna þungatakmarkana á vegum þar.

Samsetning á bor 3 er þegar hafin við aðgöng 1 á Teigsbjargi og segir Yrsa Sigurðardóttir, tæknistjóri hjá framkvæmdaeftirliti Landsvirkjunar, að hann eigi að vera tilbúinn í slaginn eftir um tvo mánuði, eða í lok júlí. Samsetning á bor númer 2, sem fluttur var að aðgöngum 2 við Axará í byrjun apríl, gengur vel og er stefnt að gangsetningu hans í lok næsta mánaðar. Þegar er byrjað að bora með bor 1 sem kom til landsins skömmu fyrir jól. Hann var ræstur 24. apríl sl. og er enn verið að fínstilla hann. Er búið að bora eina 300 metra með honum, mest 38 metra á einum degi sem eru nærri fjórföld afköst miðað við hefðbundna jarðgangagerð.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica