Samskip - Fréttir

Franck & Tobiesen taka við rekstri skrifstofu Samskipa í Lysekil

26.5.2004

Samskip AB og Franck & Tobiesen AB hafa undirritað samning um að þeir síðarnefndu taki við rekstri á skrifstofu Samskipa í Lysekil í Svíþjóð og tekur samningurinn gildi 1. júní næstkomandi.

Franck & Tobiesen starfa nú þegar sem umboðsmenn Samskipa í Halmstad. Þeir þekkja starfsemi Samskipa vel og munu þessar ráðstafanir því ekki hafa í för með sér breytingar fyrir viðskiptavini Samskipa.

Samskip munu áfram starfrækja vikulegar siglingar á milli Lysekil og Bremen með skipinu MV Bremer Roland.

Á sama tíma taka Franck & Tobiesen yfir sem umboðsmenn fyrir Nor-Cargo Shipping AS í Lysekil fyrir Fermson.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica