Samskip - Fréttir
Helgafell

Arnarfell og Helgafell fá alþjóðlega öryggisvottun

1.6.2004

Gámaskipin Arnarfell og Helgafell, sem eru í eigu Samskipa hafa, fyrst íslenskra skipa, hlotið öryggisskírteini frá Alþjóða siglingamálastofnuninni (ISPS Code).

Öryggisvottun skipanna er gefin út í skráningahöfn þeirra beggja á Mön. Samkvæmt reglum Alþjóða siglingamálastofnunarinnar verða öll skip í millilandasiglingum að vera komin með slíka vottun frá og með 1. júlí næstkomandi. Útgáfa slíkrar öryggisvottunar er liður í baráttu gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica