Samskip - Fréttir

Bás Samskipa og Landflutninga-Samskipa
Bás Samskipa og Landflutninga-Samskipa

Vel heppnuð sýning á Austurlandi

16.6.2004

Samskip og Landflutningar -Samskip tóku þátt í sýningunni Austurland 2004 sem haldin var í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum dagana 10.-13. júní.

Alls sýndu 128 einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir starfsemi sína og var sýningin sérlega fjölbreytt og áhugaverð.

Ríflega 6000 manns sóttu sýninguna. Fyrirfram var búist við 6-8 þúsund gestum og var aðsóknin góð alla fjóra sýningardagana en flestir voru gestirnir á laugardag og sunnudag.

Starfsfólk frá Samskipum, Landflutningum í Reykjavík og Landflutningum á Egilsstöðum var til taks á básnum og svaraði spurningum gesta. Einnig var boðið upp á kaffi og súkkulaði, vatn, harðfisk frá Eskifirði og ýmsa gjafavöru fyrir börnin jafnt sem fullorðna.

Það er samdóma álit allra, sem að sýningunni komu, að hún hafi tekist feykilega vel. Athygli og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands sáu um framkvæmd sýningarinnar og þar á bæ eru menn mjög ánægðir eftir strangan undirbúning og erilsama sýningarhelgi.

Landflutningar á Egilsstöðum

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica