Samskip - Fréttir
Akrafell

Nýtt skip í þjónustu Samskipa

Vikulegar áætlunarsiglingar milli Austfjarða, Færeyja og meginlands Evrópu

22.6.2004

Samskip hafa bætt við skipi á móti Skaftafellinu á siglingaleiðinni milli Íslands, Færeyja og meginlands Evrópu. Verður félagið framvegis með viðkomu vikulega á Reyðarfirði og í Klaksvík í Færeyjum í stað hálfsmánaðarlega áður.

Nýja skipið, sem fengið hefur nafnið Akrafell, er með rúmlega 5.100 tonna burðargetu og var smíðað í Rúmeníu og Þýskalandi árið 1997. Það getur flutt 435 gámaeiningar, ganghraðinn er 14 sjómílur og 13 manns eru í áhöfninni.

Brottfaradagar á áætlunarleiðinni Reykjavík, Reyðarfjörður, Klaksvík, Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam breytast með tilkomu Akrafellsins. Frá og með 2. júlí nk. verður siglt frá Reykjavík á miðnætti á föstudegi í stað mánudags áður og komið til Reyðarfjarðar á sunnudegi í stað miðvikudags. Þá munu skipin hafa viðkomu í Klaksvík á mánudegi eftir breytinguna í stað fimmtudags og koma til Immingham á miðvikudagskvöldi í stað laugardags og til Rotterdam á fimmtudagskvöldi í stað sunnudags. Skaftafellið verður áfram með viðkomu á Grundartanga hálfsmánaðarlega en lesta og losa þar á fimmtudögum þegar nýja siglingaáætlunin tekur gildi.

"Með þessum breytingum stóraukum við þjónustu okkar bæði við útflytjendur og innflytjendur," segir Hinrik Bjarnason, deildarstjóri útflutningsdeildar Samskipa. "Þetta skapar t.d. ferskfiskútflytjendum á Íslandi og í Færeyjum stóraukna möguleika því fiskurinn er tilbúinn til afhendingar á fimmtudögum í Englandi en var áður að koma á markað á mánudagsmorgnum og þá sem viðbót við það mikla magn sem kemur í byrjun hverrar viku frá Íslandi eftir öðrum leiðum."

Tilkoma Akrafellsins stóreykur einnig möguleika annarra útflytjenda og innflytjenda því Samskip verða nú með áætlunarferðir tvisvar í viku til bæði Immingham og Rotterdam þar sem Arnarfellið og Helgafellið hafa einnig viðkomu þar vikulega á áætlunarleiðinni milli Íslands, Skandínavíu og meginlandsins. Fimmta skip Samskipa í áætlunarsiglingum milli Íslands og Evrópu er Jökulfellið. Það siglir á Eystrasaltshafnir og sinnir einnig ýmsum tilfallandi verkefnum.

Áætlun Akrafells og Skaftafells* sem tekur gildi 2.7. 2004

Höfn

Koma

Tími

Brottför

Tími

Reykjavík

 

föstudagur

24:00

Reyðarfjörður

sunnudagur

05:00

sunnudagur

16:00

Klaksvík

mánudagur

17:00

mánudagur

23:00

Immingham

miðvikudagur

23:00

fimmtudagur

14:00

Rotterdam

fimmtudagur

21:00

föstudagur

09:00

Reykjavík

þriðjudagur

09:00

 

 

Grundartangi*

fimmtudagur

08:00

fimmtudagur

16:00

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica