Ferð verkfræðinema til Hamborgar í boði Samskipa
Laugardaginn 5. júní 2004 lögðu þrír meistaranemar í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, Björn Björnsson, Guðmundur J. Kristjánsson og Gunnar Örn Erlingsson, ásamt leiðbeinanda þeirra, Páli Jenssyni prófessor við verkfræðideild HÍ, af stað í ferð á vegum Samskipa til Hamborgar. Ferðina hlutu þeir í verðlaun í samkeppni Samskipa og verkfræðideildar HÍ, sem gekk út á að smíða reiknilíkan fyrir Vörumiðstöð Samskipa.
Þegar til Hamborgar var komið, var ekið rakleiðis upp á hótel þar sem ferðalangar horfðu spenntir á leik Englendinga og Íslendinga. Sá spenningur breyttist reyndar fljótlega í skelfingu þegar mörk Englendinga hrönnuðust upp.
Um kvöldið gafst tækifæri til að ræða leikinn og fleiri skemmtileg umræðuefni á indverskum veitingastað. Eftir mat var farið á útikaffihús þar sem þýskur bjór var kannaður.
Sunnudagurinn var notaður til að skoða Hamborg hátt og lágt. Haldið var í ágætis siglingu um Die Elbe. Kvöldverður var snæddur á huggulegum ítölskum/portúgölskum veitingastað. Þar sem dagskrá mánudagsins var þétt, var haldið snemma til rekkju.
Kristján Ólafsson frá Samskipum sótti hópinn á hótelið að morgni mánudagsins. Farið var að skipasmíðastöð J.J. Sietas við bakka Die Elbe. Fridtjof Rohde, starfsmaður skipasmíðastöðvarinnar, sýndi hópnum vinnustaðinn en þar starfa um 1200 manns. Skipasmíðastöðin ætti að vera einhverjum starfsmönnum Samskipa kunnugleg, en þar eru nú tvö ný skip Samskipa í smíðum. Hópurinn sá einmitt þær stálplötur, sem ætlaðar voru skipunum, koma eftir einu af færiböndunum. Að hádegisverði og stuttum umræðum loknum var haldið að CTA terminalnum sem tilheyrir HHLA. CTA terminalinn er einhver sá fullkomnasti og sjálfvirkasti í heimi og því var afar skemmtilegt að sjá hvernig hlutirnir gengu upp án þess að mannshöndin kæmi þar nálægt. Eftir að gámar voru teknir af skipunum voru þeir settir á "draugabíla" - bíla án bílstjóra. Gámum var síðan raðað sjálfvirkt í blokkir skv. bestunarforriti. Mannshöndin kom aðeins nálægt þegar gámar voru teknir úr blokkunum og settir á vörubíl eða lest.
Eftir þétta dagskrá var snætt á góðum veitingastað í boði Kristjáns og Samskipa. Heimsmálin voru að sjálfsögðu brotin til mergjar yfir góðu rauðvínsglasi. Að kvöldverði loknum tvístraðist hópurinn, sumir héldu á sitt hótelherbergi, en aðrir könnuðu bæjarlífið betur.
Hópurinn vill koma á framfæri þökkum til Samskipa fyrir frábæra ferð. Einnig fagnar hópurinn því að fyrirtækið skuli halda samkeppni sem þessa. Það er óhætt að fullyrða að samstarf verkfræðideildar HÍ og Samskipa hafi aukið hróður fyrirtækisins meðal nemenda deildarinnar - og þar með væntanlegra viðskiptavina og starfsmanna Samskipa.
Björn, Guðmundur og Gunnar.

