Samskip - Fréttir

Aukin þjónusta Samskipa í Þýskalandi

1.7.2004

Nýjar skrifstofur í Düsseldorf og München

Samskip opnuðu í dag tvær nýjar þjónustuskrifstofur í Þýskalandi, í Düsseldorf og München, til viðbótar skrifstofunum tveimur sem félagið starfrækir í Bremen og Hamborg. Frank Küpperbusch er yfirmaður skrifstofunnar í Düsseldorf og starfsmenn þrír talsins en tveir á skrifstofunni í München þar sem Reinhold Stuy er í forsvari.

Opnun nýju skrifstofanna í Þýskalandi er enn einn áfanginn í útrás Samskipa og hefur það að markmiði að þjóna enn betur ört vaxandi starfsemi félagsins á meginlandi Evrópu.

"Skrifstofunni í Düsseldorf er ætlað að þjóna vaxandi flutningastarfsemi okkar í Rínardal og Ruhrhéraðinu en suðurhéruð Þýskalands verða á ábyrgð Münchenskrifstofunnar," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. Rekstur beggja skrifstofanna heyrir undir skrifstofu Samskipa í Bremen þar sem Harald Dönselmann er framkvæmdastjóri.

Samskip eru alþjóðlegt félag sem býður heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar. Með tilkomu nýju skrifstofanna í Þýskalandi starfrækja Samskip nú 32 skrifstofur í 14 löndum, auk þess sem umboðsmenn félagsins eru starfandi um allan heim.

Heimilisföng nýju skrifstofanna eru:

SAMSKIP Düsseldorf
Großenbaumer Weg 10
40472 Düsseldorf

SAMSKIP München
Flughafenmodul G
Btl. 152.27, Räume 312,314 Ebene 03
85356 München

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica