Samskip - Fréttir
Frystigámar - 40 feta

150 nýir frystigámar í notkun hjá Samskipum

6.7.2004

Umfangsmikil endurnýjun á sér nú stað á frystigámaflota Samskipa og fær félagið afhenta 150 frystigáma í Árósum í Danmörku í þessari og næstu viku. Frystigámarnir eru smíðaðir hjá Maersk gámaverksmiðjunum og kosta um 200 milljónir króna.

Nýju gámarnir fara annars vegar til endurnýjunar á eldri gámum Samskipa og hins vegar til að mæta aukinni frystigámaþörf vegna aukinna flutninga félagsins.

Um er að ræða svokallaða þriðju kynslóðar framleiðslu af 40 feta háþekju frystigámum frá Maersk verksmiðjunum og er búið að styrkja þá verulega frá fyrri framleiðslu. Rúmtak hvers gáms er 64 rúmmetrar, eigin þyngd er 4,3 tonn og hann getur borið um 30 tonn af vörum. Gámarnir eru búnir Daikin vélbúnaði af gerðinni LXE10E-A21, með möguleika á fjaraflestri, og er hægt að stilla hitastigið í þeim frá 30 gráðu frosti upp í 25 stiga hita.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica