Stefnir í met flutninga með Herjólfi á þjóðhátíð í Eyjum
Nú þegar hafa um 3.200 manns bókað sig í ferðir Herjólfs á þjóðhátíð og er það svipað og Herjólfur flutti á þjóðhátíð árið 2003. Það stefnir því í met flutninga því enn er vika í þjóðhátíð og farþegar sífellt að bætast við.
Bætt hefur verið við tveimur aukaferðum inn í þjóðhátíðaráætlunina, en fimmtudaginn 29. júlí verður farin kvöldferð frá Vestmannaeyjum kl. 23:00 og frá Þorlákshöfn aðfaranótt föstudags kl. 02:30. Einnig er aukaferð eftir þjóðhátíð og verður hún farin þriðjudaginn 3. ágúst með brottför frá Vestamanneyjum kl. 23:00 og frá Þorlákshöfn aðfaranótt miðvikudagsins kl. 02:00.
Enn er pláss fyrir farþega í aukaferðirnar en fyrir þá sem vilja komast til Eyja á þjóðhátíð er vissara að tryggja sér miða sem fyrst. Bókunarsíminn er 481-2800.

