Samskip - Fréttir

Samskip opna skrifstofu í Skotlandi

4.8.2004

Ný þjónustuskrifstofa Samskipa tók til starfa í Skotlandi um mánaðamótin og heyrir rekstur hennar undir Samskip Ltd., dótturfyrirtæki félagsins á Bretlandseyjum.

Skotlandsskrifstofan er staðsett í bænum Airdrie milli Glasgow og Edinborgar. Henni er ætlað að sinna vaxandi umsvifum Samskipa á þessu markaðssvæði, sérstaklega gámaflutningum til og frá Skandinavíu og Norður-Evrópu, flutningum á frosnu sjávarfangi og ýmisskonar stórflutningastarfsemi í tengslum við olíuvinnslu og fl.

Ciaron Reynolds, sem starfaði áður hjá skipa- og flutningaþjónustufyrirtækinu Denholm Group, er starfsmaður Skotlandsskrifstofu Samskipa. Heimilisfangið er:

Samskip Ltd.
Po Box 8709
Airdrie
ML6 8ZY
Scotland
Sími: +44 16 98 73 81 72
Fax: +44 16 98 73 05 63
Netfang: scotland@samskip.co.uk



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica