Samskip - Fréttir
Samskip styrktaraðili fiskidagsins mikla

Vel heppnaður fiskidagur á Dalvík

17.8.2004

Fiskidagurinn mikli var haldinn í fjórða sinn á Dalvík laugardaginn 7. ágúst sl. Er talið að yfir 27.000 manns hafi mætt á hátíðarsvæðið yfir daginn í blíðskaparveðri - og gengu sumir svo langt að fullyrða að gestafjöldinn hafi farið yfir 30 þúsund þegar mest var! Voru hátíðarhöld öll með miklum glæsibrag og sem fyrr lögðu Samskip þar sitt af mörkum.

Hvað sem allri talnaspeki líður er víst að gestir hafa aldrei verið jafnmargir á fiskideginum mikla og voru öll tjaldstæði í bænum sem og tún og blettir vel nýtt þá 2-5 daga sem gestirnir stöldruðu við. Veðurguðirnir voru Dalvíkingum hliðhollir eins og undanfarin ár og voru bæði heimamenn og gestir í skýjunum með daginn. Skemmtiatriði voru fjölbreytt og veitingarnar gómsætar að venju enda munu hvorki meira né minna en 94 þúsund matarskammtar hafa runnið ljúflega ofan í mannskapinn!

Samskip í lykilhlutverki

Samskip hafa verið einn af stærstu styrktaraðilum fiskidagsins frá upphafi og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum setja tæki og tól félagsins sterkan svip á hátíðarsvæðið við höfnina. Þá er sjóferð með Samskipaferjunni Sæfara með því vinsælasta sem boðið er upp á í tilefni dagsins og komast jafnan færri að en vilja.

"Við náðum að fara 10 ferðir með gesti út á sundið milli Dalvíkur og Hríseyjar," segir Ásgeir Guðjón Kristjánsson, yfirstýrimaður á Sæfara og afleysingaskipstjóri á Sæfara á fiskideginum í ár. "Hver ferð tók þetta þrjú korter til klukkustund og komust 92 farþegar í hverja ferð en því miður urðu einhverjir frá að hverfa."

Öryggismálin til fyrirmyndar

Eins og ávallt hjá Samskipum var mikið lagt upp úr öryggismálum. Nákvæm talning fór fram þegar farþegar komu um borð í Sæfara og fóru frá borði og einnig fylgdi Sæfara alltaf hraðbátur frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu með tveimur mönnum um borð ef einhver farþega Sæfara hefði fallið fyrir borð. "Sem betur fer kom ekki til þess," segir Ásgeir Guðjón, "en við teljum nauðsynlegt að hafa þennan háttinn á þegar svona margt fólk er um borð." Og ekki væsti um gestina um borð því fullorðna fólkið fékk kaffisopa og krakkarnir smávegis nammi.

En það var ekki bara á fiskidaginn mikla sem menn vildu ferðast með Sæfara því mikil ásókn hefur verið í Grímseyjarsiglingar ferjunnar í sumar. "Síðastliðinn einn og hálfan mánuð hafa sjaldan verið færri en 50 farþegar í hverri ferð," segir Ásgeir Guðjón. Hann segir að þetta séu bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn og nýti margir sér að sigla með Sæfara fram og til baka sama daginn en sumir stoppi í Grímsey milli ferða eða fara til baka með flugi. Einnig fljúgi menn út í eyna og taki þá ferjuna til baka.

Sæfari fer þrjár áætlunarferðir í viku milli Dalvíkur og Grímseyjar og tvisvar í viku milli Dalvíkur og Hríseyjar auk þess sem farnar eru fjölmargar aukaferðir á báða staðina.

Myndir: Athygli/Atli Rúnar Halldórsson.

Mynd 1:
Samskip eru einn stærsti styrktaraðili fiskidagsins mikla og setja sterkan svip á hátíðarsvæðið  
 

Samskip styrktaraðili fiskidagsins mikla

   

Mynd 2:
Ásgeir Guðjón Kristjánsson, yfirstýrimaður og afleysingaskipstjóri á Sæfara, og Albert Gunnlaugsson afleysingayfirstýrimaður, ábúðarfullir á svip í brúnni á Sæfara.
 

Yfirstýrimaður og afleysingaskipstjóri á Sæfara

   

Mynd 3:
Skemmtisigling með Sæfara er orðin fastur liður á fiskideginum mikla og komast jafnan færri með en vilja.
 Skemmtisigling með Sæfara    

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica