Landsflutningar-Samskip fyrsta fyrirtækið hérlendis sem notar biodísil
Landflutningar-Samskip er fyrsta fyrirtækið hérlendis sem notar biodísil, lífrænni og vistvænni dísilolíu sem Olíufélagið ESSO hefur hafið innflutning á. Hafa flutningabílar Landflutninga-Samskipa, á leiðinni Reykjavík-Akureyri, brennt biodísil undanfarna daga með góðum árangri.
Hið nýja vistvæna eldsneyti og samstarfið við Landflutninga-Samskip var kynnt fjölmiðlum á blaðamannafundi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun og var Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra við það tækifæri afhent flaska af umhverfisvæna eldsneytinu. Jafnframt gangsetti ráðherra einn af flutningabílum Landflutninga-Samskipa, sem keyrður er á biodísil.
Umhverfisráðherra óskaði Olíufélaginu til hamingu með þessa nýbreytni og sagði samstarf ESSO og Landflutninga-Samskipa lofsvert framtak sem forvitnilegt yrði að fylgjast með.
Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, segir ánægjulegt að taka þátt í þessu með ESSO. "Við erum opnir fyrir öllum nýjungum sem geta orðið til þess að draga úr mengun frá bílaflotanum okkar og þessar tilraunir með biodísil lofi sannarlega góðu."
![]() |
Myndatexti: Umhverfisráðherra gangsetur flutningabíl Samskipa til marks um að notkun biodísils er formlega hafin á Íslandi. Eru bilar Landflutninga- Samskipa sem keyra á biodísil kyrfilega merktir, eins og sjá má! |
||
Helstu eiginleikar biodísil
- Bíódísil er framar öllu til þess fallið að draga úr koltvísýringi og rykmengun í útblæstri bíla og stuðla þannig að því að betra umhverfi og andrúmslofti sem við lifum í frá degi til dags.
-
- Brennsla á 5 - 6% eldsneytisblöndu dregur úr útblæstri fastefnisagna um 15 - 20%.
- Biodísil myndar verulega minna af krabbameinsvaldandi efnum við bruna en venjuleg dísilolía.
- Biodísil eykur afköst véla, lengir líftíma þeirra og dregur úr hávaðamengun.
-
- Með 4% íblöndun eykst smurgetan um allt að þriðjung.
- Eldsneytið má nota á dísilvélar án þess að gera á þeim breytingar eða endurstilla að nokkru leyti, hvort heldur olían er notuð hrein eða til blöndunar.


