Samskip - Fréttir
Agnar framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs afhendir næsta manni kassann með bros á vör

Flutningar hafnir í Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog

7.10.2004

Margar hendur vinna létt verk segir máltækið og það átti svo sannarlega við í morgun þegar starfsmenn Samskipa mynduðu keðju frá Vöruhúsi A við Holtabakka að nýbyggingu félagsins við Kjalarvog og selfluttu þangað pakka - til að sýna á táknrænan hátt að flutningar eru nú formlega hafnir á allri starfsemi Samskipa í nýja húsið.

Hratt og örugglega gekk pakkinn - sem innihélt kex frá ónafngreindu fyrirtæki - frá Pálmari Óla Magnússyni framkvæmdastjóra við Vöruhús A um hendur starfsmannanna í röðinni, þar á meðal stjórnarformannsins Ólafs Ólafssonar, og endaði svo í höndum Knúts G. Haukssonar forstjóra. Þar var pakkinn skannaður inn í nýja vörustýringarkerfið, sem heldur utan um alla starfsemi Vörumiðstöðvar Samskipa, og þvínæst fluttur með lyftra á sinn rétta stað í húsinu.

Margra ára draumur að rætast
Ístak annast byggingu nýja hússins og strax og pakkinn góði var kominn á sinn stað kvaddi forstjórinn, Loftur Árnason, sér hljóðs og óskaði Samskipamönnum til hamingju með nýja húsið. Aðeins væri liðið rúmt ár frá því að fyrsta skóflustungan var tekin og síðan þá hefðu að meðaltali 200 starfsmenn Ístaks unnið að byggingunni, auk fjölda starfsmanna Samskipa.

Loftur afhenti þvínæst Ólafi Ólafssyni lykla að byggingunni og hann afhenti þá samstundis Knúti G. Haukssyni með þeim orðum að það yrði á hans ábyrgð að opna húsið á morgnana og loka því á kvöldin! Þakkaði Ólafur Ístaksmönnum vel unnið starf og einnig starfsmönnum Samskipa. "Þið eruð bestir," sagði stjórnarformaðurinn og uppskar kröftugt lófatak sinna manna.

"Það er margra ára draumur að rætast hjá okkur," sagði Knútur G. Hauksson forstjóri. Hann sagðist sannfærður um að flutningur allrar starfsemi félagsins á höfuðborgarsvæðinu undir eitt þak í nýja húsinu muni þjappa starfsmönnum félagsins enn meira saman. "Við munum standa okkur enn betur á morgun en við gerum í dag," sagði Knútur og klykkti út með hamingjuóskum til allra.

Stefnt er að því að starfsemi Samskipa, Landflutninga-Samskipa og Jóna Transports verði komin í nýja húsið um áramót. Er áætlað að ljúka flutningunum að mestu á næstu fjórum vikum en flutningur höfuðstöðvanna er þó ekki áætlaður fyrr en í desember.

Vörumiðstöð Samskipa verður sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi og slagar grunnflötur hússins upp í tvo fótboltavelli. Það er alls um 70 metra breytt, 240 metra langt og heildargólfflötur um 27 þúsund fermetrar.

Myndir frá flutningunum

Anna Guðný markaðsstjóri stýrir röðinni



flutt2885
Agnar framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs afhendir næsta manni kassann með bros á vör  Hlöðver heldur á kassanum og Knútur forstjóri skannar hann inn
   Fyrsti kassinn settur í rekka    Forstjóri Ístaks afhendir Ólafi lyklana

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica