Samskip - Fréttir

Undirskrift
verkfradi2819

Samskip styrkja meistaraprófsnema í verkfræði

8.10.2004

Þorsteinn Rafn Johnsen, nemi í iðnaðarverkfræði við Verkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk upp á 1,5 milljónir króna frá Samskipum til að vinna að meistaraprófsverkefni um bætt fyrirkomulag akstursstýringar sendibíla á höfuðborgarsvæðinu. Styrkurinn er hluti af þriggja ára samstarfssamningi Samskipa og Verkfræðideildar HÍ sem gengið var frá sl. haust.

Markmið samningsins er að styrkja tengsl og gagnkvæm samskipti Verkfræðideildarinnar og Samskipa og efla rannsóknir á sviði flutningafræða. Taka Samskip m.a. að sér að greiða námsstyrk eins verkfræðinema meðan hann leysir meistaraprófsverkefni. Á móti tryggir Verkfræðideildin að verkefnið stuðli að framþróun á sínu sviði og að því verði lokið fyrir miðjan maí á næsta ári. Bæði Samskipum, Háskóla Íslands og meistaraprófsnemanum verður heimilt að nýta og þróa áfram þær lausnir sem verkefnið kann að leiða til.

Samkomulag þessu til staðfestingar var undirritað í vikunni af Pálmari Óla Magnússyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Samskipa og Sigurði Brynjólfssyni, deildarforseta Verkfræðideildar HÍ. Viðstödd undirskriftina voru styrkþeginn, Þorsteinn Rafn Johnsen, Bjarni Bessason prófessor, Páll Jensson prófessor, Óskar Örn Jónsson, deildarstjóri Landflutninga-Samskipa og Eva Hlín Dereksdóttir, verkfræðingur á rekstrarsviði Samskipa. Páll er leiðbeinandi og umsjónarmaður verkefnisins af hálfu Verkfræðideildar HÍ en Óskar Örn og Eva Hlín eru tengiliðir Samskipa.

Myndatexti:

Pálmar Óli Magnússon og Sigurður Brynjólfsson undirrita samkomulag Samskipa og Verkfræðideild Háskóla Íslands. Á milli þeirra er styrkþeginn, Þorsteinn Rafn Johnsen. Standandi, frá vinstri eru Óskar Örn Jónsson, Eva Hlín Dereksdóttir, Bjarni Bessason og Páll Jensson.



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica