Samskip - Fréttir
Ný skip

Smíði nýrra skipa Samskipa gengur vel

Krónur og evrur undir kjölinn!

18.10.2004

Vinna við smíði nýrra gámaskipa Samskipa, sem leysa af hólmi Arnarfell og Helgafell, gengur vel hjá þýsku skipasmíðastöðinni J.J.Sietas í Hamborg. Er gert ráð fyrir að nýju skipin verði bæði komin í reglubundnar siglingar fyrir félagið milli Íslands op meginlands Evrópu fyrir febrúarlok á næsta ári.

Kjölur var lagður að nýja Helgafellinu í liðinni viku og að nýja Arnarfellinu um miðjan september. Við það tækifæri var smámynt, bæði íslenskar krónur og evrur, lögð undir kjöl skipanna. Er það gamall og góður siður og á að tryggja að skipin verði bæði farsæl og gjöful!

Sjósetning nýja Arnarfellsins er áætluð um miðjan næsta mánuð og í lok janúar nk. á það að vera tilbúið til afhendingar. Sjósetning nýja Helgafellsins er svo fyrirhuguð mánuði síðar, eða um miðjan desember, og verður það afhent Samskipum í lok febrúar á næsta ári.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica