Samskip - Fréttir
Undirskrift KA og Landflutninga-Samskipa á Akureyri

Landflutningar-Samskip endurnýja styrktarsamning við KA

25.10.2004

Styrktarsamningur Landflutninga-Samskipa við handknattleiksdeild KA á Akureyri hefur verið endurnýjaður. Hólmar Svansson, rekstrarstjóra Landflutninga-Samskipa á Akureyri og Magnús Gauti Gautason, fjármálastjóri handknattleiksdeildar KA, undirrituðu fyrir helgi samningi þar að lútandi.

Landflutningar-Samskip hafa verið með áberandi merkingar í KA heimilinu á Akureyri um árabil og var félagið með þeim fyrstu til að heilmerkja markteigana.

"Við erum mjög ánægð með þá auglýsingu sem við höfum fengið og vonandi koma aurarnir sem vel fyrir KA," sagði Hólmar Svansson, rekstrarstjóri Landflutninga við undirritunina. "Litirnir okkar? gult og blátt - passa líka svo vel saman að þetta samstarf er alveg borðliggjandi".

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica